Fréttir

25.10.2009

Forskot tekið á Rjúpnasæluna á Grænlandi


Það er ekki amalegt útsýnið við veiðar þarna

Framkvæmdastjórinn hefur verið við vinnu í Kangerluarsuk Ungalleq á Grænlandi síðustu vikurnar og kom nú sunnudagsfrí og var ákveðið að ganga til rjúpna. Reynist þetta vera fyrsta veiðiferð Skýttá Helvítið þitt erlendis og var veðrið og félagsskapurinn ekki af verri endanum.


Þorri var í góðu dagsformi með 10 Rjúpur meðan Framkvæmdastjórinn var sáttur við sínar 6

Það var enginn annar en Þorri Stórskytta sem fylgdi okkkar manni á veiðislóðirnar og upp úr krafsinu höfðu þeir félagarnir 16 rjúpur. Þorri hafði þó vinninginn á Framkvæmdastjóran með 10 rjúpum á móti 6 rjúpum Framkvæmdastjórans.


Veiðisvæðið var ekki það þægilegasta yfirferðar

Gríðarlega erfitt er að ganga í þessu landi enda stórgrýtt með snjó upp í mitti en þeir félagar víluðu það ekki fyrir sér með fyrrnefndum árangri.

Myndir 

Skrifað 25.10.2009 kl. 20:03 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 101
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 499
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 337166
Samtals gestir: 70933
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 10:45:41

Vafraðu um



Tenglar

This page in english