Lög Bíttá Helvítið þitt

1. grein:
Stjórn félagsins er alráð og ríkir því tvíræði í félaginu. Stjórnin tekur allar ákvarðanir um nýlimun, þ.e. hverjir eru hæfir limir og hverjir óhæfir. Ekki er hægt að vísa núverandi stjórn frá eða bæta við stjórnarlimum. Komi sú staða að annar í núverandi stjórn falli frá af einhverjum orsökum er það alfarið ákvörðun eftirlifandi stjórnarlims um innlimun annars í hans stað. Ef eftirlifandi stjórnarlimur óskar einræðis er það leyfilegt.

2. grein:
Nýlimun er aðeins gerð af stjórnarlimum og til að fá inngöngu þarf til þess fyrsta að eiga nógu ódýran veiðibúnað eða úr sér genginn. Undanþágur um gæði og verð veiðibúnaðs eru aðeins gerðar af stjórnarlimum. Næsta mál fyrir möguleika á nýlimun er að leysa þraut sem viðkomandi stjórnarlimur leggur fyrir hann. Síðasta skilyrði innlimunar er að standast erfitt sálfræðipróf sem stjórnin leggur fyrir verðandi nýlim.

3. grein:
Kvenmenn eru með öllu bannaðir sem limir enda hafa kvennmenn ekki limi og er þá einnig möguleiki Brókbakks farinn fyrir bý því til að Brókbakk verði þarf tvo eða fleiri karlmenn til. Þó er möguleiki á einkabrókbakki. Spúsur meðlima eru þó leyfilegar með í veiðiferðir en þá eingöngu til yndisauka og nestissmurninga. Einnig er spúsum meðlima leyfilegt að hafa tilbúinn heitan málsverð eftir erfiða ferð við að draga björg í bú.

4. grein
Bíttá Helvítið þitt aðhyllist ALLS EKKI veiða/sleppa stefnuna nema viðkomandi fiskur teljist óhæfur til átu vegna smæðar eða vanskapnaðar. Komi upp vafamál mun stjórnin taka ákvörðun í hverju einstöku máli.

5. grein
Verði gildur limur uppvís af brotum á þessum lögum mun hann verða ávíttur fyrst og við ítrekuð brot jafnvel gerður brottrækur.

6. grein
Undanþágur frá lögum .þessum eru aðeins veittar af stjórninni og þarf þá að leggja inn formlega beiðni þess efnis á löggiltum skjalapappír. Mun stjórnin bera kostnað af þinglýsingu gagna.
Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 144
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 612032
Samtals gestir: 118581
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:14:29

Vafraðu um



Tenglar

Topplistinn
This page in english