Smjörsteiktur Rangárlax með möndlum


Smjörsteiktur Eystri Rangárlax með ristuðum
möndluspæni í smjöri
Laxinn
Rangárlax
50 gr smjör
Sjávarsalt
Pipar
Möndluspænir 
Kartöflur
Sítróna
Salat




Byrjið á að brúna möndluspæninn á þurri pönnu.
Þegar hæfilegri brúnku er náð skal setja þær í skál til
hliðar.

Saltið og piprið laxabitana eftir smekk og steikið svo
laxabitana upp úr smjöri á frekar háum hita í 3 mínútur með
roðhliðina niður og svo aðrar 3 mínútur með hina hliðina
niður.

Bræðið smjör á pönnu þar til það fer aðeins að brúnast og
hellið þá ristuðum möndluspæninum út á. Takið pönnuna
strax af hitanum og blandið smjörinu og möndlunum vel
saman.

Berið fram með soðnum kartöflum, sítrónu og salati og
hellið smjörblönduðum möndluspæninum yfir


Flettingar í dag: 215
Gestir í dag: 62
Flettingar í gær: 499
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 337280
Samtals gestir: 70965
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 19:29:17

Vafraðu um



Tenglar

This page in english