16.05.2012 21:33

Silungsveiðar sem eru Töff!!


Loksins virðist vera komnar silungsveiðiaðferðir sem er ekki hommalegar. 
Þangað til Veiðimálastofnun tekur fyrir dýraníðin sem felast í Veiða og Sleppa og tekur upp veiðiaðferð sem býður upp á snöggan og öruggan dauðdaga eins þessa... þá heldur framkvæmdastjórinn sig við spúnastöngina tálknríf með berum höndum og hálsbrot á fisknum. 

En ef undirritaður er ekki svangur í silung sleppi hann silungsveiðum, þess vegna hefur framkvæmdastjórinn ekki enn haldið til veiða þetta vorið.

Framkvæmdastjórinn bíður eftir að hann verði svangur í silung svo hann geti prófað þessa aðferð.

Fylgiskjöl:

Lög um dýravernd 1994 nr. 15 16. mars

V. kafli. Dýraveiðar.
 15. gr. Ávallt skal staðið að veiðum þannig að það valdi dýrunum sem minnstum sársauka. Skylt er veiðimönnum að gera það sem í þeirra valdi stendur til að aflífa dýr sem þeir hafa veitt áverka.
 Við dýraveiðar skal að auki fara að fyrirmælum gildandi laga um vernd, friðun og veiðar dýra.

26.02.2012 16:16

Framkvæmdastjórinn svikinn um sitt árlega hreindýr



Eitthvað misfórst drátturinn hjá hreindýraráði þetta árið því Framkvæmdastjórinn síkáti fékk ekki úthlutað og eru 233 á undan honum í biðröðinni auk þeirra sem svindla sér framar í röðina með 5 ára reglunni. 
Vill því skotveiðideild Bíttá Helvítið þitt (Skýttá Helvítið þitt) koma opinberlega á formlegum umkvörtunum þess efnis með von um umbætur því þessi vinnubrögð hreindýraráðs eru til háborinnar skammar.

03.08.2011 22:20

Framkvæmdastjórinn fellir sína árlegu hreinkusu

Framkvæmdastjóri félagsins framdi þetta dýraníð klukkan 8:00 í morgun. Jón Hávarður var að vanda fádæma góður í leiðsögn sinni enda var dýrið fallið klukkan 8:00 og fláð klukkan 13:00. Færið var 200 metrar og gangan 250 metrar. Loksins stendur Aktu Taktu undir nafni. 

03.06.2011 22:08

Stjórnarformaður félagsins Matthías 30 ára

Hann Matti okkar er 30 ára í dag. Í tilefni þess hef ég sett saman skemmtimyndband honum til heiðurs. 


Tæknilegir örðugleikar... Sjáið myndbandið á þessum hlekk. Matti 30 ára



  • 1
Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 144
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 612032
Samtals gestir: 118581
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:14:29

Vafraðu um



Tenglar

Topplistinn
This page in english