Fréttir10.1.2010Fyrsta veiðiferð Bíttá Helvítið Þitt árið 2010![]() Stjórnaformaður er orðin áskrifandi að þessum í Kringluvatni Hörðustu limir Bítta byrjuðu veiðitímabilið með stæl í dag sunnudaginn 10. jan, en þeir eru Stjórnarformaður, Sigmar bóndi og Eiríkur án gælunafns. Stjórnarformaður vaknaði nokkrar mínútur fyrir átta og hellti uppá kaffi áður en hann lagði af stað að sækja strákana. Sigmar hvaðst en sofandi svo hann fór fyrst til Eiríks sem hafði nýlokið við að tefla morgunskák við Benedikt 16. Páfa. Eiríkur virtist illa sofinn sökum draumfara um risa skepnur sem rifu hann með sér niður um vök en það kom ekki að sök. Eftir stutt drykkjar stopp og daður í BSO voru kappar klárir til að leggja í hann austur í Reykjarhverfi. Ferðin gekk snuðrulaust fyrir sig og það var rétt að byrja að birta þegar þeir mættu út að afleggjara við Kringluvatn. Þar var snjósleðanum dúndrað afturábak af kerruni og þar sat hann fastur svo fyrsta verk var að losa hann og gera ferðahæfan ásamt því lesta hann með ísbor, skóflu og bónda. Eftir að stjórnarformaður hafði skutlað bónda og ísbor að Kringluvatni skutlaðist hann eftir Eiríki sem vantar gælunafn. Bóndinn var að sjálfsögðu búin að bora tilraunaholu til að meta ísþykkt sem var um 30cm en tölvert vatn var einnig ofan á ísnum. Stjórnarformaður braut ísinn með að ná í litla bleikju sem fékk að fara sömu leið aftur og ekki leið á löngu þar til bóndinn hafði vippað sinni fyrstu upp um vök á meðan Eiríki án gælunafns gekk ekki alveg nógu vel. Ekki dró mikið til tíðinda fyrr en stjórnarformaður sér stærðarinnar flykki synda framhjá aumingjalegri rækjunni sem hékk á önglinum án þess að svo mikið sem sýna henni minnsta áhuga. Þá dró hann fram leynivopnið sem var humar sem var aðeins farið að slá í. Hann setti vænan bita á öngulinn sem varla fékk að komast ofan í vatnið áður en stærðarinnar urriði stökk á hann og var dregin á þurrt. Í sömu andrá og þetta gerðist reif bóndin annan urriða úr sinni holu sem var orðin blóði drifinn eftir mokveiði líðandi dags. ![]() Sigmar situr og dreymir um skákina góðu Eiríkur (sem við verðum að finna gælunafn á) vippaði svo stuttu seinna upp sínum fyrsta ísfiski á ævini eins og ekkert væri og gaf þaulreyndum ísfiskveiðimönnum Bíttá ekkert eftir. Þá var kominn tími til að koma sér heim eftir yndislegan dag við Kringluvatn og það er óhætt að segja að það sé orðin árviss viðburður að byrja veiðiárið þar. Á heimleiðinni undirbjó bóndinn sig undir að tefla við benidikt 16 líkt og Eiríkur hafði gert fyrr um morguninn en þegar greinin er skrifuð er ekki vitað um útkomu úr þeirri viðureign. Stjórnarformaður fór glaður heim á leið laus við aðgerðahvíða og frekar spenntur fyrir að prufa nýja Rosendal hnýfinn sem stóðst allar kröfur sem á hann voru gerðar og endaði þessi eini urriði sem hann hyrti flakaður, roðflettur og tandori kryddaður og tilbúin til neislu næsta dag. Ljósmyndir í boði IPhone eru hér Flettingar í dag: 415 Gestir í dag: 59 Flettingar í gær: 373 Gestir í gær: 75 Samtals flettingar: 337853 Samtals gestir: 71037 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 19:27:19 |
Vafraðu um
Tenglar
Eldra efni
|