Fréttir

25.8.2009

Hin Árlega ferð Framkvæmdastjórans í Hofsá og Vesturdalsá í Vopnafirði


Það eru fallegir fiskar í Vesturdalsá.

Á dögunum dvaldi Framkvæmdastjórinn ásamt spúsu sinni Ellen á Vopnafirði í góðu yfirlæti hjá Bankastjóranum á Vopnafirði og eiginmanni hennar. Að vanda bauð Bankastjórinn Framkvæmdastjóranum í veiði bæði í Hofsá og Vesturdalsá. Gerðu þau með sér samning um að Framkvæmdastjórinn myndi sjá um veiðina og aflinn myndi falla í hendur Bankastjórans.


Þessi bleikja bjargaði Framvæmdastjóranum undan Brókbakki með naumindum

Dagur 1 - Hofsá Efra Silungasvæði
Aðeins betur gekk þar en í fyrra  og ekki leið á löngu þar til Framkvæmdastjórinn hafði sett í væna bleikju í Jónshyl en missti hana eftir stutta baráttu. Þar eftir gerðist ekkert neinsstaðar fyrr en um klukkan 22 þá lyngdi hvassan norðanvindin í um það bil 20 mínútur og þá tók helvvítis bleikjan Svartan Toby efst í Fellshyl. Þarna tókst Framkvæmdastjóranum með naumindum að bjarga sér undan fyrsta Brókbakki síðan í júní.


Ekki slæmt að fá 5 Punda Urriða í rómuðu bleikjuánni Hofsá

Dagur 2 - Hofsá Neðra Silungasvæði
Eftir næturrigningarnar hafði hofsáin breytt sér í kakó við brúnna en þar var engu að síður fengið sér að veiða en án árangurs. Var þá haldið í Jónshylinn efst á neðra svæðinu og varð Framkvæmdastjórinn fljótlega var við fisk í vakstri þar neðst. Eftir að hafa kastað flestum litum af kúluhausum á hann ákvað Framkvæmdastjórinn að reyna Bleikjubanan, gamla hönnun veiðimannsins. Og auðvitað var hann á, einhver smá sjóbirtings ræfill. Ofar í hylnum beit svo helvítið loksins á, 5 punda urriði.  


Vesturdalsá stendur alltaf fyrir sínu - Snilldarspræna

Dagur 3 - Vesturdalsá
Fremri Hlíðar brúin gaf vel að vanda eða 5 bleikjur. Einhver slatti fékkst í Teljarastrengnum og svo Lax og stór Bleikja í Hringhyl.


Ellen reyndi fyrir sér meðan Framkvæmdastjórinn sporðrenndi samlokunni

En ekki má gleyma því að þessi elska sem Ellen spúsa Framkvæmdastjórans er fór í einu og öllu eftir tilmælum í lögum félagsins og færði Framkvæmdastjóranum hangikjötssamlokur, jógúrtkökur og kaffi á meðan hann var að erfiða við að draga heim björg í bú.
Framkvæmdastjórinn þakkar að sjálfsögðu einnig Bankastjóranum á Vopnafirði fyrir skemmtunina fæðið og húsnæðið

Myndir Hofsá

Myndir Vesturdalsá

Skrifað 25.8.2009 kl. 17:22 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.8.2009

Fyrsta hreindyrið í sögu Skýttá Helvítið þitt



Framkvæmdastjórinn - Fljótsdalsheiði - Grjótalda
Framúrskarandi leiðsögn Jóns Hávarðar
Nógur matur í allan vetur.

Myndir

Skrifað 17.8.2009 kl. 20:21 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 386
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 334910
Samtals gestir: 70459
Tölur uppfærðar: 14.3.2010 00:17:40

Vafraðu um



Tenglar

This page in english