Fréttir

28.7.2009

Vífilsstaða og Urriðakotsdrama - Tony kvaddur heim


Tony sýnir Sveini og Birni hvernig skuli veiða bleikuna

Sú sorgarstund hefur nú risið á landi okkar að besti innflytjandi landsins Tony Thorstensen hefur ákveðið að sigla af landi brott heim til Noregs. Kveðjustundin átti sér stað á þeim veiðistað sem Tony hefur verið mest hjartfólginn hér á landi, Vífilsstaðavatn. Fáir menn hafa veitt eins mikið í Vífilsstaðavatni og hann og var það hann sem uppgvötaði Bleikjuhúkkshyl sem hefur verið limum Bíttá Helvítið Þitt hjartfólginn veiðistaður síðan 2007 þegar Tony ásamt Bíttá-bræðrum, Sveini og Kristjáni gereyddu hrygningarstofni Vífilsstaðavatns það árið. En stofnin hefur náð sér á strik. Tony veiddi rúmlega 20 bleikjur á einu kvöldi á dögunum á þessum margrómaða veiðistað og stóð til að hann myndi kenna Sveini Framkvæmdastjóra og Birni Formanni Norður-Jótlandsddeildar veiðar í bleikjuhúkkshyl svo kunnáttan hyrfi ekki úr landi með Tony.


Björn leggur á ráðin hvernig skuli veiða vatnið

Eftir þó nokkuð námskeið hjá Tony kom að kveðjustundinni. Framkvæmdastjórinn og Formaður Norður-Jótlandsdeildar grétu og föðmuðu og kysstu Tony Formann Noregsdeildar sem loks kvaddi og gekk niðurlútur á brott.
Sveinn og Björn reyndu að veiða áfram en áttu erfitt með það fyrir kökknum í hálsinum auk þess hafði Tony greinilega eytt hrygningastofni þessa árs í fyrri ferð sinni. Því ákváðu þeir félagar að halda í Urriðakotsvatn og reyna fyrir sér þar.



Oft var veiðin góð hjá Tony í Vífilsstaðavatni

Þegar að vatninu var komið fannst mönnum það ekki mjög veiðilegt. Allt fullt af sefi og pínulítið. En bíddu við þar stökk um 2 punda fiskur hálfan meter upp úr vatninu. Ákveðið var þar og nú að reyna með sér þarna. Sveinn fékk fljótlega nart á Bobby Brown líki sitt en svo ekkert meir. Sagði Sveinn þá hátt og snjallt við Björn að nú væri sett undir besta urriðafluga í heimi, Rektorinn. Viti menn í öðru kasti tók hann stökkvandi og dýrvitlaus. Eftir talsverða baráttu náðist kvikindið á land með dyggri hjálp Björns. Reyndist hann vera 1,5 Pund kolsvartur og feitur matfiskur. Eftir þetta fékkst ekkert nema eitt seiði.


Auðvitað var hann drepinn Urriðakotsurriðinn.

Því var ákveðið að reyna Bleikjuhúkkshyl Vífilsstaðavatnsins aftur.
Björn sem er þekktur fyrir að spúna geddur á Norður-Jótlandi reyndi með sér gedduspúnaðferðina án árangurs og því afhendi Framkvæmdastjórinn honum flugustöngina og bauð honum að reyna með sér. Verður að segjast að eins og Björn er fær við gedduspúninn þá vantar talsverða æfingu á flugustöngina.


Bleikjan sem veiddist er farið var nákvæmlega eftir leiðbeinigum Tonys

Því bauð Sveinn honum að hann skyldi sýna sér hvernig skyldi bera sig að og rifjaði upp öll heilræðin sem Tony hafð gefið honum fyrr um kvöldið. Hann kastaði á réttan stað, lét fluguna sökkva og beið og kippt svo í. Viti menn hann hafði húkkað eina bleikjuna í magan og landaði henni með hjálp Björns.


Björn með metbleikjuna úr Hraunsvatni 10 pund og 85 cm

Því miður veiddi Björn ekkert en við sem þekkjum til hans veiða, vitum að hans veiðiaðferð veiðir bara stórfiska svo sem metbleikjuna í Hraunsvatni og því tók hann þessu veiðileysi af æðruleysi og minntist á það að sennilega væru ekki nógu stórir fiskar fyrir hann í þessum vötnum.

Tony Thorstensen þín verður sárt saknað á Íslandi

Myndir

Skrifað 28.7.2009 kl. 12:57 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.7.2009

Eystri Rangá - BTB (Back to Basics)


Eystri Rangá er engin Elliðaá að stærð

Eftir þó nokkuð suð á Laugardaginn frá Stjórnarformanninum í Framkvæmdastjóranum um að kíkja með sér í Ytri Rangá á Sunnudeginunm, samþykkti Framkvæmdastjórinn það með semingi en fór svo eitthvað að malda í móinn þegar líða tók á daginn og kom að því að panta rándýr veiðileyfin. Ákváðu þeir félagarnir því frekar að fara eitthvað ódýrara.
Framkvæmdastjórinn hafði varla skellt á Stjórnarformanninn þegar öðlingurinn hann Jón hringdi í hann og bauð honum í Eystri Rangá þar sem honum hafði áskotnast tveggja stanga dagur fyrir ekki neitt. Framkvæmdastjórinn var ekki lengi að segja já og spurði hvort Stjórnarformaðurinn veiðisjúki fengi ekki að fljóta með. Öðlingurinn Jón hélt að það væri lítið mál og þar með var laxveiðinni reddað ódýrt.


Það er nauðsynlegt að vera á góðum Pajero við veiðar

Fyrri vaktin var á svæði 2  og skiptu veiðimenn liði þannig að stjórnin var saman með stöng á meðan feðginin Jón og Ólöf voru saman. Ekki dró til mikilla tíðinda á fyrri vaktinni en Stjórnarformanni fannst hann setja í fisk en líklegra er að þar hafi hann krækt í botn.


Jón með hann á rétt áður en hann kvaddi hann

Á seinni vaktinn fór svo að draga til tíðinda þegar rennt var fyrir laxinn á Bátsvaðinu á svæði 1. Þar komu laxarnir upp eins og höfrungar og þar missti Jón fyrsta fiskinn sinn á flugustöng, um 7 punda lax sem kominn var með höfðuð í silungaháfinn þegar hann sneri við og hvarf í dýpið. Vonandi veit það á góða lukku fyrir Öðlinginn Jón.


Fýlusvipurinn frægi

Óaðvitandi um óheppni Öðlingsins Jóns bölvar Stjórnarformaðurinn þessum helvítis drullulæk og setur undir svartan tobyspún með augum og kastar út í með fýlusvip. Skömmu síðar setur Stjórnarformaður í 9 punda lax sem hann landar með dyggri aðstoð Framkvæmdastjórans.


Stjórnarformaðurinn með 9 punda kvikindið

Fljótlega eftir þetta heyrist hvellt jihújihh í Framkvæmdastjóranum en hann hafði sett í eitthvað ferlíki sem rauk út með bláa tobyinn og sleit hann af svo small í. Breyttist þá jihújihhið í djöfulsins andskotans helvítis helvíti og um leið og hann hafði lokið ákalli sínu til Lúsífers kom laxferlíkið upp við hliðina á honum, leit á Framkvæmdastjórann glottandi með bláan toby í munnvikinu og stakk sér svo á bólakaf.


Stjórnarformaður sæll með 11 pundin og Framkvæmdastjórinn í fýlu

Ekki var það svo til að bæta skap Framkvæmdastjórans að Stjórnarformaður setti fljótlega í 11 punda lax á sama spún og þann fyrri og náði að landa honum en aðeins vegna þess að Framkvæmdastjórinn hélt honum rólegum því hann hafði horft á aðfarirnar þegar Stjórnarformaðurinn klúðraði risableikjunni í Hraunsvatninu fyrr í sumar.


Talsvert fallegri svipurinn á Framkvæmdastjóranum núna

Nú ákvað Framkvæmdastjórinn að skipta í kopar tobyspæni og stuttu seinna tók 7 punda hrygna sem var landað Framkvæmdastjóranum til léttis. Verður að segjast að skap hans skánaði umtalsvert við þetta. Lítið gerðist eftir þetta utan þess að Stjórnarformaður missti einn lax og fannst Framkvæmdastjóranum það gott á hann.


Ólöf er fagmannleg enda þaulvön laxveiðum

Öðlingurinn Jón og dóttir hans Ólöf náðu hins vegar engu þar sem eftir var og harmar Stjórnin það mjög og hefur því krýnt Jón sem Heiðurslim samþykkt með báðum atkvæðum.
Að lokum má nefna að ferð þessi hefur fengið BTB stimpil þar sem öllum lönduðum fiski var landað á spún. En augljóst er að veiðin hefði verið mun betri ef Rauður Dropi hefði verið við höndina.

Uppskrift - Rangárlax með möndlum
Myndir

Skrifað 14.7.2009 kl. 21:16 af Fraamkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.7.2009

Ytri Rangá



Þá er fyrsta Laxveiðiferð Stjórnarformanns á enda.
Það er komið nokkuð af laxi í ána en þetta var svolítið krefjandi þá sérstaklega á svæðum 3-7-8.
Stöngin var með 5 laxa eftir tvo daga þar af var Sigurður Þengilsson með fjóra og stjórnarformaður með einn ásamt því að lenda báðir í að missa nokkra.



Stærsti laxinn var 11 pund en hitt voru flestir lúsugir smálaxar. Stöngin sem var á móti okkur náði ekki nema einum á þessum tveim dögum svo þetta hlítur að teljast mjög gott.



Frábær veiðiferð í alla staði og vill stjórnarformaður þakka Þóri Björnsyni og frú sérstaklega fyrir alla hjálpina þar sem hann bæði sýndi mönnum allt svæðið dagin fyrir veiði ásamt því að lána stangir og flugur ásamt forlátum stangahöldurum sem héldu alla leiðina, Birna sendi síðan ferska sendingu af samlokum þegar mest þurfti á að halda, hún kann þetta alveg og er þetta allt í takt við þriðju grein laga Bíttá helvítið þitt.
Á morgun er síðan stjórnin að fara í Eystri Rangá og verður gaman að sjá hvernig það gengur

Hér eru myndir úr ferðinni
 

Skrifað 11.7.2009 kl. 22:17 af ..Stjórnarformanni

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.7.2009

Fyrir þá sem eru ekki sportveiðimenn og borða fisk



Þar sem Bíttá Helvítið Þitt er fyrst og fremst bjargræðisfélag en ekki sportveiðifélag þá má benda á uppskrftir í valmyndinni hér til hliðar. Það safnast óðum í þennan dálk og skemmtilegt er fyrir þá sem eru ekki samkynhneigðir og þora að drepa fiskinn sinn að líta við þar og prófa uppskriftir sem allar eru prófaðar og ritskoðaðar af Framkvæmdastjóranum sjálfum.

Skrifað 9.7.2009 kl. 21:32 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.7.2009

Laxveiði hvað? Bleikja er málið



Á meðan allar helstu laxveiðiár landsins eru að opna er stjórnarformaður að eltast við mun fallegri fiska sem eru ekki svo fjarskyldir löxunum. Þessi bleikja kom á land í dag og vóg 3,5kg.
Stjórnarformannsfrú náði líka tveggja punda bleikju og Eiríkur náði sömuleiðis sæmilegri.

Hér eru myndir
og video

Skrifað 5.7.2009 kl. 0:28 af ..Stjórnarformanni

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.7.2009

BTB (Back To Basics) - Sjóstöng

Skoða nánar

1.7.2009

Leynileg færsla

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 507
Gestir í gær: 73
Samtals flettingar: 338059
Samtals gestir: 71082
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 12:05:22

Vafraðu um



Tenglar

This page in english