Fréttir31.5.2009H-in tvö Part II - Hafravatn og Hafliði![]() Fúsi á toppi Hafrahlíðar Enn og aftur sannast að Hafravatn er besta veiðivatn Höfuðborgarsvæðisins. Og ekki versnar það þegar hægt er að tengja saman H-in tvösem hafa reynst Suðurlandsdeildinni svo happadrjúg að undanförnu. Að þessu sinni voru H-in tvö Hafravatn og Hafliði bróðir Framkvæmdastjórans. Þeir bræður vissu að mestu möguleikar á veiði væru þar sem lygnublettirnir væru í vatninu og héldu því upp á Hafrahlíðina á Fúsa til að skoða hvar vatnið væri lygnt. Í ljós komst að vænlegasti veiðistaðurinn að þessu sinni væri á vesturbakka vatnsins. Því var haldið niður aftur að vesturbakkanum og veiði hafin. ![]() Beitubleikjan og tveir í einu. Fljótlega veiddist bleikjuræfill sem ákveðið var að þverskera í beitu. Þegar tveir bitar höfðu verið settir á sitthvorn öngulinn sem hékk niður úr flotinu og því kastað út var talið niður frá fimm. Þegar núllið gall sökk flotið og á voru tveir urriðar. Hafliði sá um beituveiðina á meðan ![]() ![]() Til lukku smakkar Hafliði á öllum fiskum sem hann veiðir. Framkvæmdastjórinn flugaði og sem fyrr reyndist flugan Svartagull happadrjúg auk þess þegar tók að dimma var það flugan Bleik Ellen sem hann fór að taka. ![]() ![]() Hann er ekki amalegur stórurriðinn í Hafravatni Í lok veiðinnar höfðu náðst tveir Hirðingjar (Fiskur sem nær stærð sem hentar til manneldis) en eftir að hafa flakað þá neyddist Framkvæmdastjórinn til að henda flökunum til að forða fjölskyldu sinni frá snýkjudýrasýkingu þar sem flökin voru alsett ormi. Já það er ótrúlegt að slíka veiðiparadís og náttúruperlu sé að finna svona steinsnar frá Reykjavík. Myndir 28.5.2009Eyjafjörður eyðilagður?Eftirfarandi grein er skrifuð í fyrstu persónu en ekki þriðju persónu vegna þess að hér er Framkvæmdastjóri félagsins að lýsa sínum skoðunum sem þurfa ekki endilega að endurspegla skoðanir annara lima. 26.5.2009ÓtitlaðFrétt um veiði Ath: af öryggisástæðum verða engar myndir birtar með þessari frétt Aumur KO og uppsalamaður fóru í leyniveiðiferð í leynivatn/á/læk Bíttás(ekki verður gefið upp hvurs slags veiðistað um ræðir, af þjóðaröryggisástæðum). Þar veiddust 4 urriðar u.þ.b. 0-10 pund að þyngd stykkið(hér er aðeins gefið upp þyngdarbil og borið við bankaleynd). Ekki verður gefið upp hvort hér hafi verið um að ræða veiðiferð á kostnað viðskiptabankanna/skilanefnda/fjármálaeftirlits eða hvort limir greiddu kostnað við veiði úr eigin vasa. Síðan var skotið upp tveimur skammdrægum flaugum í tilraunaskini og ein atómbomba sprengd neðanjarðar til að sýna alþjóðasamfélaginu í tvo heimana. Svo var haldið heim. Denny Crane! KO Jong Il 25.5.2009Alvöru veiðitúr á norðurlandi!Dagur 1. Föstudagur ![]() ![]() ( Þarna tók Sverrir þrjá) Ekki var hægt að keyra meðfram ánni svo þeir frændur brugðu undir sig betri fætinum og röltu niður að neðsta veiðistað og byrjuðu þar. Sverrir óð yfir ánna og þeir tóku sitthvorn bakkan. Byrjunin lofaði strax góðu þar sem stjórnarformaður sá strax nokkra flotta fiska í einum að neðstu hyljunum og fylltist allur spennu við það, þeir vildu hins vegar ekki bíta á neitt sem þeim var boðið. Á hinum bakkanum var Sverrir hinsvegar búinn að setja í fisk og var það en til að auka spennuna. Sverrir týndi þá upp í tonnatali ásamt því að missa eitthvað talan úr fyrsta hyl þrír flottir urriðar sennilega um tvö pund. Stjórnarformaður hélt áfram upp ánna án þess að verða var við svo mikið sem einn einasta fisk á meðan Sverrir hélt áfram að tína þá upp meðal annars einn um fjögur pund feitan og flottan. Það náðist ekki ein einasta mynd af Sverri með fisk og þar sem það er skylt að sleppa öllum afla var ekki séns að taka þær eftirá. Staðan eftir fyrstu lotu 7-0 Fyrir Sverri en stjórnarformanni til málsbóta var aðeins veitt á öngullausar flugur vegna sleppiskyldu ásamt suðvestanáttar sem flestir vita að gefur ekki neina veiði á austur bakkanum það er aldrei veiðimaðurinn allaveganna....... Sólbruni ái ái........ ![]() (Sverrir Reynir við hann við Mýrarkvísl) Dagur 2. Laugardagur Á Laugardag var svo byrjað um morgunin í mýrarkvísl, Sverrir uppfrá en þar sem jeppi stjórnaformanns lætur ekki bjóða sér snjóskafla fékk stjórnarformaður sér heilsubótagöngu niður að beygju. Stjórnarformaður náði þar tveimur urriðum ásamt því að missa tvo á meðan Sverrir náði sjö fiska í öllum stærðum í bland líkt og dagin áður. Seinnipartinn var síðan haldið niður á Haga til að reyna við láxár urriðan. Þar setti stjórnarformaður stax í og landaði þriggja punda urriða sem var mjög kröftugur og svo strax annan um tæp tvö pund, Sverrir hélt líka áfram að vera í fiski og landaði fjórum þann daginn á meðan stjórnarformaður endaði með þrjá ásamt því að brjóta toppin á flugustönginn við að landa þeim seinasta. ![]() ( Stjórnarformaður glaður með fenginn, þessir tóku drjúg ) Dagur 3. Sunnudagur Á sunnudag var svo haldið niður í presthvamm en vegna veðurs stoppuðu þeir frændur stutt við en ekki fyrr en stjórnarformaður var búin að detta og hálf slasa sig þegar báturinn lenti á grjóti. Ákveðið var þá að halda aftur niður í Haga þar sem vindátt var hagstæð til flugukasta. Að þessu sinni var stjórnarformaður vopnaður 7 feta þristinum hennar kolbrúnar vegna stangarbrots daginn áður. Í fyrstu köstunum þar setti stjórnarformaður í svaka bolta (áætlaður um fjögur til fimm pund) en eftir dágóða baráttu rauk hann út í á stött upp í loft og losaði með því fluguna ú munnvikinu ( Rosalegt sjónarspil). Síðan tók við törn þar sem stjórnarformaður missti fimm urriða og náðist aðeins einn á land hjá honum á fyrri vaktinni, á meðan landaði Sverrir (Viljið þið giska?????) Sjö.............. ![]() (Jón Heiðar tók þennan á black ghost) Eftir að hafa farið upp í veiðihús að taka saman dótið og að þrýfa var ferðinni svo heitið á stefnumót við tvo félaga Sverris Jón Heiðar og ónafngreindann. Um kvöldið var síðan blandað í flösku og haldið aftur til veiða og þá fóru hlutirnir að gerast hjá stjórnarformanni þar sem hann tók fyrst þrjá á flugu frá Sveini Þór sem nefnist víst eitthvað æji það er þurkað út úr minninu og síðan gaf ónefnud aðili Stjórnarformanni flugu að nafni Drjúg sem gaf honum tvo til viðbótar og þá í kringum þrjú pund sem var Rosalegt með þristinum. Um þetta leitið voru menn orðir misgáfulegir og það var mikið hleigið og skemmt sér. Strákarnir héldu svo áfram að tina upp einhverja fiska milli þess sem þeir liftu flöskum, Jón Heiðar Náði td í flottan þriggja punda urriða og eins og flestir vita er það siður í laxá að ef félaginn fær fær þriggja punda urriða rétt áður en veiði líkur á að éta hausinn á honum fljótlega eftir löndun og það var gert í þessu tilviki. Stjórnarformaður var orðin þreittur og lemstraður eftir þriggja daga veiði og ákvað því að sleppa mánudeginum og hélt heim á leið. ![]() (Þristurinn að vinna fyrir laununum) Dagur 4. Mánudagur Á mánudaginn var svo þeim feðgum Hauki og Hákoni boðið í Mánudagsbíltúr með stuttu stoppi í veiðihúsinu við árbót til að sækja afla og svo var honum skutlað inn á skútustaði í reyk. Um kvöldið gat Stjórnarformaður ekki setið á sér lengur og ákvað að kíkja aftur í Laxá. Þá náði hann einum urriða um pundið sem var sleppt, og stuttu síða þegar hann ætlar að bregða við fiski brotnaði þristurinn líka svo það var ekkert að gera annað en að pakka saman og fara heim. ![]() (Sverrir aðeins orðin skakkur) (Þessi er fyrir Ian) Frábær veiðitúr í alla staði og það var sunnudagurinn sem stóð uppúr í þessu öllu saman. Frábær félagsskapur flottir fiskar og fjör er sennilega besta lýsingin fyrir utan að hafa lært heilmargt af þessum snillingum. Stjórnarformaður þakkar kærlega fyrir sig. Hér eru svo myndir úr ferðinni 22.5.2009Hafravatn og Hraunsfjörður - H-in tvöÁ meðan Norðandeildinni gengur svo lítið að veiða að sjálfur Stjórnarformaðurinn birtir veiðisögu af frænku sinni í Reykjavík, hefur sunnandeildin haft nóg að gera. Hér verður sagt af frægðaför framkvæmdastjórans í H-in tvö, Hafravatn og Hraunsfjörð.
Hafravatn
![]() Hornsílisvatnið - fallegt en ekki er framleidd nógu smá fluga fyrir hornsíli. Framkvæmdastjórinn skrapp á dögunum einn með sjálfum sér í jeppaferð á Hafravatnsfjallið og fann þar álitlegt vatn. En eftir ýtarlegar rannsóknir kom í ljós að þar reyndist vera fiskur en aðeins af Hornsílisgerð.
![]() Hafravatn - hann stekkur allt um kring Því var ákveðið að halda í hið margrómaða Hafravatn sem Framkvæmdastjórinn kallar gjöfulasta og besta veiðivatn í nágrenni Höfuðborgarsvæðisins. Nú munu sjálfst margir kíma með sjálfum sér en Framkvæmdastjóranum er full alvara með þessari staðhæfingu og rökstyður það með því að þar gerist sárasjaldan Brókbakk og þar veiðist yfirleitt vel og manni leiðist ekki því það er á í hverju kasti. ![]() Hafravatn - Þeir eru stórir og sterkir þarna Svona var það þennan daginn. Vatnið kraumaði alveg upp að landi og fékk Framkvæmdastjórinn þar átta fallega silunga á rétt um klukkutíma. Vegna ástar sinnar á vatninu og lífríki þess var öllum silungunum sleppt. Það hafði ekkert við smæð þeirra að gera og bendi ég á myndirnar þessu til stuðnings. Að lokum vill Framkvæmdastjórinn koma þeim tilmælum til þeirra sem veiða í Hafravatni að sleppa öllum fiski til að halda þessari náttúruperlu sem næst ósnortinni. Hraunsfjörður
![]() Hraunsfjörður - Framkvæmdastjórinn fer með ritjúal veiðigyðjunni til heiðurs Á uppstigningadag ákváðu Framkvæmdastjórinn og Frú að bregða sér á Grundafjörð til að njóta náttúrunnar í faðmi Rúnu Jobba og hennar tilvonandi eiginmanns Tomma Rúnu. ![]() Ekki ómyndarlegir silunarnir úr Hraunsfirðinum Framkvæmdastjórinn náði að plata allt liðið í Hraunsfjörð og náði þar í 10 silunga en Rúna Jobba og fjölskylda engan. Þó missti Kristján Freyr, 4 ára sonur þeirra tilvonandi hjóna einn góðan.
Þarna við bakkan voru þessir yndælis pólverjar sem veiddu á maðk og samkvæmt samtali við þá þegar Framkvæmdastjórinn fór voru þessi öðlingar kominir með 24 fiska samtals á 6 stangir.
![]() Silungurinn kominn í neytendaumbúðir En ljóst er að eftir að veiðimyndin Bitið á í Hraunsfirði kom út þá hefur veiðigyðjan ákveðið að blessa Framkvæmdastjóran með þessum fallegu silungum.
Flettingar í dag: 350 Gestir í dag: 66 Flettingar í gær: 499 Gestir í gær: 76 Samtals flettingar: 337415 Samtals gestir: 70969 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 20:40:03 |
Vafraðu um
Tenglar
Eldra efni
|