Fréttir25.4.2009Brúará of stór fyrir Bíttá - Neikvætt fiskvatnshlutfall olli Brókbakki.
Myndir 17.4.2009Ýmislegt páska eitthvað![]() Um páskan byrjaði veiði hjá stjórnarformanni þannig að hann fór ásamt dóttir sinni alla leið inn í Bárðardal og fékk leifi til að kasta þar í á nokkra að nafni Svartá. Það var enn mikill snjór og í rauninni bara hörku vetur þarna innfrá enþá. ![]() það var enginn afli sem skilaði sér upp úr Svartánni þennan daginn en silungabrauðið bragðaðist ágætlega skolað niður með heitu kakói. Á heimleiðinni var síðan komið við í Ljósavatni þar sem þau náðu að tína upp einn urriða og eina bleikju og var það fínn endir á annars frábærum degi og það er ekki laust við það að það sé kominn nettur spenningur fyrir sumrinu. ![]() Á föstudaginn langa var síðan ferðinni heitið aftur í Ljósavatn ásamt Kalla og fjölskyldu til að reyna að krækja í fisk í soðið. Kalli náði þar að krækja í ágætan urriða í kring um hálft pund, það var síðan einn tittur enn sem kom á land ásamt því að einhverjir bitu á en vildu ekki á land. Hér eru svo fleiri Páskamyndir 17.4.2009Ransóknardorg E250 í Hraunsvatni![]() Fyrir ekki svo löngu síðan lagði stjórnarformaður leið sína upp í Hraunsvatn drottningu drottningana, mekka okkar Bíttá manna og yndi bragðlauka okkar. Tilgangur ferðarinnar var að stunda ísfiskveiðar eins og við köllum það og til að núllstilla pirringsmælirinn. Það tókst að mestu að ná að núllstilla mælirinn og að svala veiðiþörfinni án þess þó að hann hafa krækt í nokkurn risa. ![]() Hitastig hafði verið ágætt í nokkra daga á undan svo það var 20cm vatnslag ofan á ísnum sem gerði aðstæður erfiðar til gangs. Stjórnarformaður hafði hins vegar verið svo forsjáll að vera í vöðlunum og gönguskóm svo það kom ekki að sök þó skórnir blotnuðu. ![]() Þessi ferð var ekki síður hugsuð sem vísindaleg rannsókn á dýpt vatnsins jafnt og botngerð, boruð voru mörg göt mis langt frá landi til að mæla dýpt og til að komast að því hvar marbakkinn væri. Allar upplýsingar voru síðan teknar saman, greindar og settar í Exel og vistaðar í heila stjórnarformanns þar sem auðvelt er að sækja þær næsta sumar við vatnið. Hér eru svo fleiri myndir Flettingar í dag: 378 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 313 Gestir í gær: 61 Samtals flettingar: 334899 Samtals gestir: 70455 Tölur uppfærðar: 13.3.2010 23:54:10 |
Vafraðu um
Tenglar
Eldra efni
|