Fréttir

27.3.2009

Fyrsta Brókbakk 2009


Tony (Anton) reynir fyrir sér en þarna kraumaði vatnið af lífi

Framkvæmdastjórinn og Formaður Noregsdeildar, Tony Thorstenssen (lauslega þýtt Anton Þorsteinsson) settu stefnuna á Hafravatn þar sem það er svo sem íslaust í von um að geta krækt sér í einn af þessum rómuðu stórrurriðum sem sveima um vatnið eins og frægt er. Þeir sem hafa vit á veiði vita einnig að þetta er sá tími þegar ís er að fara af vatni sem þessi frægi urriði leitar upp á grynningarnar í ætisleit og því freistuðu þeir félagar gæfunnar í 2 stiga frosti.


Frostið gerði flugukastið erfitt eins og sjá má fraus í lykkjunum

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir með hákarl sem beitu auk úrvals flugna og spæna varð veiðigyðjan þeim ekki hliðholl að þessu sinni og verða þeir því að játa á sig algjört Brokeback og það fyrsta tímabilsins. En einhver varð að brjóta ísinn og taka áhættuna á fyrsta Brokebakki ársins svo félagar fari að taka upp stangir og hefji veiðar og þá er best að Framkvæmdastjórinn með Formman Noregsdeildar sér til fulltyngis gangi þar á undan öðrum og taki á sig skömmina.

Myndir

Skrifað 27.3.2009 kl. 19:45 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 207
Gestir í dag: 73
Flettingar í gær: 401
Gestir í gær: 59
Samtals flettingar: 335515
Samtals gestir: 70588
Tölur uppfærðar: 15.3.2010 15:29:20

Vafraðu um



Tenglar

This page in english