Fréttir

26.2.2009

Fúsi fær stærri skó


Fagur er hann Fúsi minn,
hrímfölur og grár.
Framar flestum bifreiðum,
fer fjöllin flest og ár


Fúsi hefur fengið nýja skó. Hann fór úr stærð 31 í stærð 33 án þess að bretta upp eða stytta skálmar. Til að Suzuki jeppar sem dæmi fari í sömu skóstærð þarf að bretta upp á og stytta skálmar auk þess sem oft þarf að færa fót til á ökkla. 
Framkvæmdastjórinn er gríðar sáttur með þessa ódýru breytingu.

Skrifað 26.2.2009 kl. 18:26 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.2.2009

Dorgað á Kringluvatni (Uppfært myndaalbúm)


Stjórnarformaður að vonum glaður með gripinn

Þennan fyrsta dag Febrúarmánaðar var ferðinni heitið í Reykjarhverfi nánar tiltekið Kringluvatn. Patrolinn bar þau Ármann, Guðmund, Jóhönnu og Stjórnarformann ekki alla leið upp að vatni frekar en fyrri daginn enda einstaklega hvetjandi farartæki til hreyfingar. Um 35 mínútur tók að ganga frá  jeppanum að vatninu en þegar að vatninu var komið hóf Ármann að bora holur í massavís enda helmassaður maðurinn. Stjórnarformaður krækti í fyrsta fiskinn, fína bleikju að passlegri stærð á pönnu. Hanna nældi því næst í flottan urriða af passlegri stærð og svona hélt þetta áfram og varð afraksturinn einhverjar fleiri bleikjur og urriði af flottri stærð hjá Stjórnarformanni. Seinna, rétt áður en þau ætluðu að fara að huga að heimferð nældi Stjórnarformaður í flottan 5 punda urriða sem mun vera stærsti fiskur sem hann hefur tekið í gegnum ís á sínum á sínum margrómaða og farsæla ferli. Ármann kláraði þetta síðan með því að næla í flottan urriða aðeins minni en hans heitt elskaða var með (en það mun vera Jóhanna...ekki stjórnarformaðurinn). Þetta var á alla kanta frábær fyrsta veiðiferð ársins og lofar þetta góðu fyrir komandi sumar en stemmt er á að fara aftur um næstu helgi ef veður lofar.

Hér koma svo myndir úr ferðinni og verður líklega fjölgað myndum þegar Ármann hefur tæmt vélina sína.
Veiðikortið á góðri leið með að borga sig í matarinnkaupum og ekki veitti af í þessu árferði!
     

Skrifað 1.2.2009 kl. 20:54 af ..Stjórnarformanni

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 348
Gestir í dag: 57
Flettingar í gær: 336
Gestir í gær: 65
Samtals flettingar: 336914
Samtals gestir: 70884
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 18:35:02

Vafraðu um



Tenglar

This page in english