Fréttir

15.8.2008

Vopnafjarðarárnar Hofsá og Vesturdalsá

Hofsá í Hofsárdal

Framkvæmdastjórinn við veiðar í Hofsá

Bankastjórinn á Vopnafirði, Svanborg Víglundsdóttir, bauð Framkvæmdastjóranum til veiða í Hofsá og Vesturdalsá í Vopnafirði dagana 12.-15 ágúst því veiðitölur hafa verið fremur dræmar í ánum og sérstaklega Hofsá. Sennilegast er að um sé að kenna ofneyslu áfengis verðbréfagutta sem telja fínt að veiða í dýrum ám.
Reyndar var hér um að ræða efra silungasvæði Hofsár og bankastjórin er tilvonandi tilvonandi tengdamóðir Framkvæmdastjórans. En um veiðina í Hofsá. Ræs var klukkan 6:30 og komið á veiðistað um 8:30. Hafði Framkvæmdastjórinn með spúsu sína Ellen sér til ánægju og yndisauka. Veiðar voru hafnar neðst á svæðinu og veitt upp eftir ánni. Fljótlega áttaði Framkvæmdastjórinn sig á því afhverju verðbréfaguttarnir væru sífullir því engin viðbrögð fékk hann þar til hann kom á ómerktan veiðistað. Þar fékk hann nart og sá litla bleikju auk þess sem hann veiddi enn eitt seiðið. Nú var komið hádegi og enginn fiskur á land en Ellen hafði náð að veiða 3 pund af krækiberjum í pokan sem átti að notast undir aflan. Eftir hádegi var ekki eins ánægjulegt þar sem spúsa Framkvæmdastjórans kom ekki með auk þess að þrátt fyrir miklar gönguferðir fram og til baka í neophrane vöðlum varð Framkvæmdastjórinn ekki var við fisk.


Þeir sem sjá rjúpu á myndinni fá í verðlaun pylsu að eigin vali í næstu verslun
Vinninga skal vitjað í næstu verslun


En rjúpu sá hann og reyndi að kasta á hana án árangurs enda utan tímabils. Þegar halla tók að kvöldi ákvað Framkvæmdastjórinn að nú væri nóg komið og halda skyldi heim. Hann gat þó allavega huggað sig við að hann hafði þó fengið eitt laxaseiði.

Vesturdalsá í Vesturárdal


Vesturdalsá í Vesturárdal. Horft út dalinn

Dagur 1:
Byrjað var á efsta svæðinu ofan við Hauksstaði og fékk framkvæmdastjórinn með sér leiðsögumann, Krónprinsinn af Hauksstöðum, Guðmund sem er auk þess veiðivörður í Selá og Vesturdalsá auk þess var fyrrnefnd spúsa Framkvæmdastjórans með í för. Byrjað var í Brúarhólshyl en þar sást einn lax og reynt var við hann fyrst með Bubba tækninni (hitch) og þá tók hann eina roku á eftir flugunni en lagðist svo aftur og hreyfði sig ekki fyrr en Rauður Frances var settur undir þá tók han aðra roku en fór svo aftur í fýlu á botninn.


Krónprinsinn af Hauksstöðum, Guðmundur sem leiðbeindi okkar manni fyrsta daginn

Þá var ákveðið að kíkja ofar og farið í Djúphyl. Þar sást enginn lax og því héldu menn og spúsa ofar í Valagilshyljina. Í þeim efri sást til tveggja laxa sem reynt var við með fyrrgreindum afleiðingum, ein roka og svo lagst í dvala. Nú var fyrri vaktinni lokið og árangurinn 3 laxaseiði á land á meðan Ellen hafði vinningin enda hafði hún í þetta sinn veitt um 6 pund af krækiberjum í flugnanet.


Framkvæmdastjórinn faglegur með flugustöngina á Fremri Hlíðar Brúnni

Seinni vaktin var á Miðsvæðinu og byrjað var á Fremri-Hlíðarbrúnni. Þar lágu  tugir Beikja auk tveggja laxa sem ákveðið var að reyna við. Hafðist að að draga tvær þar upp í það skiptið á Kopar Mola. Einnig var þetta eina tækifæri Ellenar til að reyna fiskni sína fyrir frekju Framkvæmdastjórans og setti hún í eina sem náði svo að slíta sig lausa. Þaðan var svo haldið á veiðistað sem nefndur er Svartibakki eftir að hafa heyrt af honum góðar sögur en án árangurs. Þó náðist að brjóta fínu stöngina þar. Næst varð þá haldið í Víðineshyl. Þar taldi Framkvæmdastjórinn sig sjá lax í stærri kantinum og æstist allur upp við það og hljóp niður í gilið til að reyna við hann en án árangurs því sennilegast hefur þessi lax bara verið grjót og grjót hafa ekki verið þekkt fyrir að bíta mikið á rauðan frances. Því var ákveðið að halda aftur á Fremri Hlíðar brúnna og renna þar fyrir bleikjuna sem reyndist ágæt ákvörðun því þar náðist að slíta upp tvær bleikjur í viðbót fyrir háttinn.

Dagur 2.
Í þetta sinn var Framkvæmdastjórinn einn á ferð og hafði fengið úthlutað neðsta svæðinu fyrri vaktina og því efsta seinni vaktina. Byrjaði hann á Vaktursstaðabrúnni en þar lágu nokkrar bleikjur. Ekki vildu þær bíta og því haldið í Teljarastrenginn en hann var sagður vænlegur til vinnings af Hauki bónda á Hauksstöðum sem gaf sig á tal við Framkvæmdastjóran meðan hann slakaði færinu fram af brúnni.
Verður að teljast kraftaverk að Skódi Ellenar hafi komist alla leið í Teljarastrenginn því sá vegur er ekki fyrir neitt minna en Subaru. Var tekin sú ákvörðun um að reyna fyrst Svartan Friðrik í Teljarastrengnum sem gaf af sér eina nýgengna rauðholda bleikju.


Montinn með Maríulaxinn sem var hrygna sem var að sjálfsögðu drepin eins
og sjá má á blóðinu.
Takið eftir tannafarinu í veiðiugganum

Eftir svoldinn barning í viðbót með Friðriknum fór Framkvæmdastjórinn djúpt ofan í fluguboxið og náði þar í laxaflugu sem honum hafði verið gefin og var nú nýuppgerð. Lýkist hún mjög Colly Dog flugunni og því verður hún bara kölluð það. Eftir örfá köst með henni gerðist það. Búmm og tog. þetta var engin bleikja þetta var greinilega lax. Framkvæmdastjórinn svitnaði en fannst Maríulaxinn ekki vera eins sterkur og allar þessar gróusögur um lax sem hann hafði heyrt. 5 Punda urriðinn í Mýrarkvísl tók betur í. Um 10 mínútum síðar þegar laxinn lá á bakkanum kom í ljós afhverju. Laxinn var bara 3 pund en nýgenginn og lúsugur. Á meðan Framkvæmdastjórinn var að bjástra við að tína lýsnar af svo hann gæti með minnstum viðbjóði bitið af honum veiðiuggan heyrði hann blýstur af  veginum. Þar stóð spúsa hans og hafði gengið langa vegalengd eftir veginum á háhæluðum stígvélunum eins og kölluð til að verða vitni af Maríulaxlöndun Framkvæmdastjórans. Hún hafði nefnilega séð Framkvæmdastjóran berjast við kvikindið. Ekki kom meira úr þeim hylnum utan við eina bleikju sem sleppti sér.
Seinni vaktin var svo á efsta svæðinu. Haukur á Hauksstöðum hafði sagt okkar manni að 5 laxar lægu í Djúphylnum auk þess sem hann vildi ólmur lána Framkvæmdastjóranum jeppa sinn svo hann kæmist upp eftir. Svona hjálpsemi og gestrisni finnst ekki í Reykjavíkinni.


Séð ofan í Djúphylinn.

Jæja í Djúphylinn var haldið og um leið og litið var fram af gilbarminum og skimað eftir fiski stökk einn lax hæð sína og að auki voru þarna fjórir aðrir eins og Haukur hafði sat og því var haldið eins og blátt strik niður að á. En ekki tók laxinn sama hvað reynt var og var því ákveðið að halda niður í Brúrahólshyl og hamast í bleikjunni.


Síðasti fiskurinn sem veiddur var. Merkilega stór flök þó smár sé.

Það var eins og við manninn mælt í þriðja kasti tók hún og reyndist það vera síðasti fiskurinn sem tók í þessum túr því nú fannst Framkvæmdastjóra vera komið gott og best að koma sér heim því húma var farið að kveldi á þessum fallega degi. Heima beið spúsa hans með Mexíkóskan veislumat sem fór vel í maga eftir erfiðan en viðburðaríkan dag í Vesturdalsá í Vesturárdal.

Aflatölur:
6 Bleikjur
1 Lax

Myndir

Skrifað 15.8.2008 kl. 13:07 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.8.2008

Ég veiddi átján og Simmi bara tvær og pabbi engar bleikjur!!!



Færasti veiðimaður landsins ásamt stjórnarformanni og Sigmari bónda héldu til veiða og var ferðinni heitið í Brúnastará í fljótum til að eiga séns á sjóbleikju. Ekki gekk vel til að byrja með en þau veðgin voru fljótt vör við bleikjuna en hún var treg til að taka. Sigmar náði þó fljótt að landa fínustu bleikju. Síðan var haldið niður með ánni en þegar Stjórnarformaður ásamt hinni fengsælu Kolbrúnu voru að koma sér fyrir við glæsilegan hyl stekkur öndvegis önd undan bakkanum og slær vatnið með vængjunum alveg endana á milli í hylnum svo það var nánast öruggt að ekki yrði neinn fiskur tekin þaðan, þeirri stuttu tókst þó að tína tvær bleikjur úr hylnum og verður það að kallast gott miðað við lætin.



Eftir að hafa snætt brauð með silungi var sú stutta komin með nóg og hún vildi færa sig yfir í sína uppáhalds á Stífluá. Þar var hún svo sannarlega í essinu sínu en hún landaði hvorki fleiri né færri en sextán bleikjum sem tóku ýmist Gulltopp eða straumflugu útgáfu af Gulltoppnum sem hefur reynst álíka vel. Sú stutta var hinsvegar ekki sátt við að mega ekki vaða eins og henni sýndist á stígvélum og pollabuxum og lítur því út fyrir það að það þurfi að fara að útvega henni vöðlur. Ætli það séu ekki framleiddar vöðlur fyrir fjögurra ára?? Sennilega hægt að fá vöðlur frá kína sem eru framleiddar af fjögura ára barni. En ætli þaö sé nú ekki bara best að halda sig á bakkanum.



Á heimleiðinni var hún hin stoltasta og sagðist hafa veitt miklu fleiri en pabbi og Simmi og ég held að þeim hafi báðum fundist heiður að fá að veiða með þessari ungu veiðikonu.

Hér eru svo myndir úr ferðinni   

Skrifað 11.8.2008 kl. 23:37 af Stjórnarformanni

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.8.2008

Austandeild gerir engin helvítis Brókbökk í Unulæk


Já Fínt...

Bræðurnir Magnússon ásamt Föður vorum Guide þeirra ásamt spúsu Hafliða héldu til veiða í ættarlaxveiðiá þeirra Unulæk á frídegi Verslunarmanna. Nóg var af fiski í læknum og var hann stöðugt í flugunni hjá Framkvæmdastjóranum.


Hafliði klæddi sig upp í veiðigalla að hætti Marrakkómanna

Það dró þó heldur betur til tíðinda þegar Hafliði sá sæskrýmsli í læknum sem leit við spúninum einu sinni en lagðist svo í felur undir bakka. Framkvæmdastjórinn hélt áfram upp bakkafullan lækinn og leitaði fisks víðar. 


Hann er stór silungurinn í Unulæk

Það var þó ekki fyrrr en þurrflugan var sett undir að hlutirnir tóku að gerast. Silungurinn var stöðugt í flugunni og einir 3 náðust á land. Svo þegar komið var upp í Laxhyl þegar hlutirnir tóku að gerast. Þurrflugan flaut framhjá bakka þeim er nefndur er stórfiskabakki, það heyrðist skvetta og flugan kaffærðist, hann var á.


Ef vel er að gáð má þarna sjá fisk þarna í slý-slummunni

Sá tók nú heldur betur í, þaut upp hylinn, batt tauminn utan um slý og losaði svo fluguna úr sér í rólegheitum meðan Framkvæmdastjórinn hélt aftur af slýinu. Nokkru síðar tók Framkvæmdastjórinn að taka betur á fiskinum að hann hélt en fékk þá bara væna slummu af slýi að hætti Sollu á Grænum Kosti.

Vongóðir fórum við feðgar af stað,
með heitkonu yngsta í veiði.
Fisklausir fimm tímum seinna í hlað,
tja... eitt veiddist fingurlangt seiði.

Myndir

Skrifað 5.8.2008 kl. 12:57 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 64
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 302
Gestir í gær: 74
Samtals flettingar: 336009
Samtals gestir: 70708
Tölur uppfærðar: 17.3.2010 05:58:08

Vafraðu um



Tenglar

This page in english