Fréttir16.7.2008Já fínt...![]() 13.7.2008Veitt og Sleppt í Hafravatni![]() Framkvæmdastjóri ásamt formanni Norður-Jótlandsdeildar fengu sér að veiða í Hafravatni eftir grillveislu þess fyrrnefnda og spúsu hans. Eins og veiðimannasamfélagið veit vel þá er það vatn þekkt fyrir stórfiska og ekki fór varhluta af því í þessari ferð. Ákveðið var að hefja veiðar móti vindi því samkvæmt 1. Þætti Sporðakasta þá hentar sú veiðiaðferð einkar vel. ![]() En eftir að hafa barið um stund á móti vindinum mundi Framkvæmdastjórinn eftir orðum Formanns Noregsdeildar, Antons Þorsteinssonar (Tony Thorstensen) um hvernig best væri að haga veiðiskap í Hafravatni. Anton sem er þekktur af fiskni sinni og kænsku hafði nefnilega algjörlega öfuga sögu að segja á við 1. Þátt Sporðakasta. Hann hafði besta reynslu að veiða hlémegin í vatninu. Því var ákveðið að reyna að fara að ráðum Norðmannsins og viti menn að ekki leið á löngu þar til Framkvæmdastjórinn hafði krækt í fisk. ![]() Ákvað hann að fara að ráðum Mokveiðimanna Skagafjarðar og sleppa öllum stórfiski og þar sem þessi Bleikja náði líklega 80 grömmum fékk hann líf eftir myndatöku. Eitthvað jókst þunglyndi Björns við þetta og skipti hann úr spún í flotholt þar sem hann beitti gervimaðk og Powerbait Turbo. ![]() ![]() Á meðan tók Framkvæmdastjórinn annan fisk sinn og að þessu sinni urriða sem var enn stærri en sá fyrri eða um 85 grömm og þurfti hann að berjast við samvisku sína um að sleppa honum til að vernda stórfiskastofn vatnsins frekar en að taka hann heim og láta stoppa hann upp. En hann var myndaður og verður myndin að nægja upp á vegg. ![]() ![]() Ekki varð þetta til að minnka gremju Björns og nú færði hann sig um stað meðan hann muldraði að í Århus å væri mun skemmtilegra að veiða því þar hefði hann stundað að spúna geddur síðustu misseri. ![]() ![]() Nú skipti Framkvæmdastjórinn um taktík og hóf veiðar með þurrflugu sem löngum er þekkt að sé einkar fiskin í Hafravatni. Það var eins og við manninn mælt hann var á og sá stærsti hingað til. Sannkölluð stórbleikja, 100 grömm. Framkvæmdastjórinn gaf henni auðvitað líf eins og sönnum veiðimanni sæmir. ![]() Þegar hingað var komið sögu var formaður Norður-Jótlandsdeildar orðinn heldur gramur og tók að taka saman föggur sínar og veiðibúnað og sagðist langa heim. Framkvæmdastjóri taldi það nú í lagi þar sem hann hafði veitt vel þettta kvöldið en ákvað að kasta þurrflugunni einu sinni enn og kom þá ein svaklegasta taka sem hann hafði nokkurn tíma fundið. Á var stærðarinnar urriði, þó ekki jafn stór og 100 gramma stórbleikjan en vóg hann 93 grömm. Baráttan var snörp og tók talsverðan tíma og það var ekki fyrr en Framkvæmdastjóri setti bremsuna fasta og tók á öllu sem hann átti að hann lét í minni pokan. Já þeir eru þekktir fyrir hetjulega baráttu urriðarnir í Hafravatni en þessi eins og hinir fiskarnir fékk frelsið og syndir nú um djúpin og hver veit nema einhver annar heppinn veiðimaður fái þau forréttindi að kljást við þennan mikla kóng undirdjúpa Hafravatns. Myndir Myndband - Bíttá Helvítið þitt - Betra en .... Bleikja 10.7.2008Veitt, engu sleppt![]() Eina ferðina enn var haldið í Fnjóskánna, að þessu sinni veitt heilann dag á svæði 3 og 4. Um morguninn var veitt á 3 svæði og lamið hvern staðinn á eftir öðrum og lítið um að vera. Það var ekki fyrr en komið var á Þvergarðsbreiðu þegar sett var í lax. Eftir snarpa baráttu var landað þessari fínu 10 - 11 punda hrygnu og henni að sjálfsögðu ekki sleppt. ![]() Eftir hádegi var svo haldið á 4 svæði og byrjað á uppáhalds staðnum, Símastreng. Eftir að hafið farið tvær umferðir um strenginn allann var sett bláa Snældu undir og það var þá sem lax númer 2 tók. Barist var við kvikindið í ca. korter og landað þessum glæsilega 14 punda hæng. Honum var að sjálfsögðu ekki sleppt frekar en hinum, enda stórlaxar mjög eftirsóttir í kistuna. ![]() Svo var haldið áfram og veitt staðinn Nesbugðu. Þar var ég fljótt var við fisk. Eftir nokkur köst tók svo vænn lax fluguna en stundu seinna náði kvikindið að hrista sig af flugunni. Ég gat ekki annað en haldið áfram niður hylinn svektur yfir laxinum sem slapp enda RISA stór. Þegar komið var niður á brot setti ég svo í sárabótina. Ný runninn lax af smærri gerðinni. ![]() Þetta var alveg magnaður dagur og fór ég heim með einn smálax sem ég setti á grillið en hinir stóru, fóru í klakkistuna. Myndir (Laxar í kistu) 4.7.2008Fnjóská V2![]() Reynslubolltinn átti
annan hálfann dag í Fnjóská í gær, að þessu sinni á 4 svæði og var haldið
þangað eftir vinnu. Veðrið var forkastanlegt, 20 gráður og sól og hafði áin
vaxið um helming á einum degi. En það var samt ákveðið að reyna og eins og
fyrri daginn setti ég í nýgenginn 2 ára lax. ![]() Sexí Á land kom þessi glæsilega 13 punda hrigna sem var drepinn samstundis enda mottóið að fylla kistuna fyrir kreppu veturinn harða. myndir 4.7.2008Blanda var það heillin!!![]() (Flott bleikjan hjá Stjórnarformanni) Stjórnarformaður ásamt Sigmari bónda urðu sér út um veiðileifi í Blöndu IV. Þeir félagar fengu að hætta fyrr í vinnum sínum til að gera þeim mögulegt að ná seinni vaktinni. Stjórnarformaður var ekki lengi að vippa fyrsta fiskinum á land fallegri 4 punda Bleikju sem tók að sjálfsögðu gulltopp. Það var ekki mikið sem gerðist eftir það fyrr en þeir ákváðu að færa sig ofar, þar sá stjórnarformaður lax á að giska 15 pund og benti bóndanum á að þarna væri maríulaxinn hans á ferð og ákvað því að víkja og láta bóndanum staðinn eftir. ![]() (Bóndinn að reyna við Maríu) Bóndinn kastaði og kastaði þar til þeir félagar voru vissir um að þetta gæti varla verið lax þar sem hann hafði ekki nokkurn áhuga á því sem honum var boðið svo það var ákveðið að halda ofar. Ekki tókst þeim þó að krækja í lax þar en það var ágætis gönguferð engu að síður. ![]() (Þarna er fyrrverandi tilvonandi maríulax bóndans) Í lok vaktarinnar var síðan haldið aftur niðureftir þar sem hlutirnir fóru að gerast, Bóndinn varð td. var við lax stökkva í litla fossin niðurfrá, Stjórnarformaður náði síðan á land annari bleikju 1,5 til 2 punda. Þegar stjórnarformaður var að draga inn á hjólinu til að segja þetta gott sér hann að stærðarinnar lax elti hjá honum en snéri snögglega við er hann nálgaðist og var það ekki til að auðvelda sárindin frá laxbrokebakkinu, stuttu síðar sýndi sig eitt kvikindi sem stökk svo það var kastað nokkur köst í átt að staðnum áður en tekið var saman. ![]() (Hér hefur stjórnin komist að samkomulagi um að bóndin verði lukkudýr félagsins) Þess má til gamans geta að Sigmar hefur gert brókbakk í þremur síðustu veiðiferðum sem þeir hafa farið saman í á meðan stjórnarformaður hefur veitt vel og er það nú svo komið að sökum hjátrúar þorir stjórnarformaður ekki öðru en að hafa bóndan með sér í hverja veiðiferð hér eftir sem svona happagrip og er jafnvel verið að ræða verð fyrir lukkugripinn, því gæti öðrum félögum jafnvel staðið til boða að bóka hann í veiðiferðir mjög fljótlega gegn vægu gjaldi. Aflatölur: Stjórnarformaður: 2 bleikjur Sigmar bóndi: 3 Brokebökk í röð Hér er svo tengill í myndaalbúm Flettingar í dag: 107 Gestir í dag: 32 Flettingar í gær: 499 Gestir í gær: 76 Samtals flettingar: 337172 Samtals gestir: 70935 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 11:24:13 |
Vafraðu um
Tenglar
Eldra efni
|