Fréttir

28.6.2008

Fljótið skelfilega


Undirritaður þáði boð í fljótið skelfilega enda ekki á hverjum degi sem manni er boðið í lax. Ekki skemmdi það að maður með reynslu Jón Heiðar ætlaði að gæda mig í gegnum svæðið. Haldið var á austurbakka efri og sprangað í björgun inn á veiðistaði. Eftir að hafið barið með flugunni allann fyrri partinn var "garðflugan" sett undir og vitið menn, hann var á í fyrsta kasti. Laxinn réði ferðinni í þetta skiptið og reif út línuna og það var ekki fyrr en ég setti allt fast þegar hann sleit línuna í sundur.


Seinni partinn var haldið á sama stað og flugan reynd áfram því undirritaður hafði fulla trú á henni þrátt fyrir reynslu fyrri partsins. Eftir endalaus fluguskipti var ákveðið að prufa "garðfluguna" og það var eins og áður, hann tók um leið. Eftir skamma stund var landað þessum fína laxi, 94cm og 7,5kg. Já já ég veiddi lax á maðk....

Myndir

Skrifað 28.6.2008 kl. 10:24 af Fidda

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.6.2008

Sólstöðuhelgi Suðurlandsdeildar


Göngugarparnir á toppnum þar sem áður var blómlegt silungsvatn sem nú hefur þornað upp vegna þurka á Reykjavíkursvæðinu

Suðurlandsdeildin var ekkert að eyða laugardeginum í Brókbökk heldur hélt til fjallaí leit að vötnum og verðandi Bíttám. Ferðinni var heitið á Esjuna eftir að hafa heyrt því fleygt að þar á toppnum væri feykna gott veiðivatn. Eftir eina klukkustund  og þrjátíu og fimm mínútur af þrotlausri göngu var toppnum loks náð og virðist sem vatnið hafi þornað upp í þurrkatíðinni hér sunnanlands. En útsýnið var fagurt yfir sundin blá í blíðviðrinu sem leikur við sunnlendingana.


Framkvæmdastjórinn var hamingjusamari en KO með sinn feng en líklegt er að hann hafi lært af þessu og hlusti á stóra bróður næst

Eftir erfiða gönguferð á laugardeginum heyrði suðurlandsdeildin því fleygt að enn væri vatn í Meðalfellsvatni. Því var haldið þangað. Þar komí ljós óumdeild veiðireynsla Framkvæmdastjórans þar sem hann landaði einum stærsta urriða sem veiðst hefur í Kjósinni á meðan KO bróðir hans missti annan fyrir reynsluleysi sitt og strákaskap þegar hann hlýddi ekki ráðum stóra bróður síns um hvernig honum skyldi landað.
En Framkvæmdastjórinn kom sæll heim með feng sinn þar sem spúsa hans Ellen tók sigri hrósandi á móti honum með lambasteik.

Aflatölur:
KO: 0 af engu
Framkvæmdastjórinn: 1 af Urriða

Myndir

Skrifað 23.6.2008 kl. 22:24 af Stjórnarformanni

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.6.2008

Sumarsólstöður í Skagafirði og Svartá í Bárðardal



Þeir félagar Sigmar bóndi, Castro og stjórnarformaður tóku sumarsólstöður að þessu sinni í Skagafirði og voru það Grunnavatn og Ölversvatn sem urðu fyrir valinu. Úr báðum þessum vötnum komu slatti af nice titts sá stærsti um 1 pund. Það eru engar myndir til af þessari ferð þar sem myndavél stjórnarformanns var batterislaus.



Á Laugardaginn var dagurinn síðan tekinn í Svartá í Bárðardal. Eftir að hafa stoppað í kaffi og kleinur á Hvarfi var haldið inn að Svartá og byrjað að veiða. Lítið urðu þeir félagar varir við fisk en stjórnarformaður náði þá að krækja í einn 4,5 punda 58 cm Urriða og var það allur afli dagsins.

Skrifað 23.6.2008 kl. 13:30 af Stjórnarformanni

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.6.2008

Bíttá


                      (Urriðinn sem stjórnarformaðurinn náði)

Stjórnarformaður og Fidel Castro Skelltu sér í Bíttá í kvöld með góðum árangri.

Aflatölur
Stjórnarformaður: 2 Bleikjur og 1 Urriði
Fidel Castro: 3 Bleikjur + 1
Hér eru myndir úr ferðinni

Skrifað 17.6.2008 kl. 3:07 af Stjórnarformanni

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.6.2008

Hraunsvatnið byrjað að gefa og Formannsferð í Laxá í Aðaldal


(Stjórnarformaður grobbinn með bleikjuna)

Stjórnarformaður ásamt Sigmari bónda fengu sér kvöldgöngu í von um fiskerí og það var Hraunsvatn sem varð fyrir valinu. Eins og venjulega voru þeir ekki búnir að vera að kasta nema örstutta stund þegar stjórnarformaðurinn var búinn að krækja í fallega fjögurra punda Bleikju, hana tók hann á nánast sama stað og átta punda kvikindið í fyrra.
Meira urðu þeir félagar ekki varir við fisk eins og oft vill verða þarna uppfrá, steindautt alveg hreynt, svoleiðis að rétt eftir miðnætti var ákveðið að halda heim á leið þar sem stjórnarformaður átti að vakna snemma dagin eftir til þess að fara í Laxá í Aðaldal.



Í Aðaldalnum átti Stjórnarformaður veiði við Formann Conráðs sem bauð honum í veiði í landi Presthvamms. Formaðurinn byrjaði á að fara á bátnum að bleikjuslóðum og af því tilefni var Gulltoppurinn vígður í fyrsta skipti í sumar, hann gaf hinsvegar urriða sem var húkkaður í og þarafleiðandi hélt Stjórnarformaður að þarna væri um risafisk að ræða en svo reyndist ekki vera, engu að síður 1,5 til 2 punda urriði feitur og flottur. Stjórnarformaður krækti síðan í tvo til viðbótar áður en farið var í hádegismat.


(Ísbjörninn á bakvið þá tók Bleikann nobbler)

Þegar komið var í bústaðin sem Formaðurinn hafði til umráða beið þar dýrindis hádegisverður sem formannsfrúin hafði framreitt fyrir þá félaga. Eftir matinn var svo haldið aftur niður að á þar sem  stjórnarformaðurinn nældi síðan í tvo til viðbótar en þá var orðið verulega mikill vindur og var því ákveðið að segja þetta gott í bili.
Um kvöldið náði Stjórnarformaður svo í eitt kvikindið til viðbótar áður en hann hélt inn á Mývatn að ná í fisk í reyk á skútustöðum.
Hér eru svo myndir

Skrifað 15.6.2008 kl. 23:46 af Stjórnarformanni

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.6.2008

Vífilsstaðavatn afbrókbakkað

Skoða nánar

6.6.2008

Drottningin er vöknuð!!!!!

Skoða nánar

4.6.2008

Nýtt myndband

Skoða nánar

4.6.2008

Laxá í Mývatnssveit klikkar ekki. Nice tits in Reykjardalsá

Skoða nánar

4.6.2008

Skýrsla óbreytts lims: Ómannúðleg vorveiði í Grenlæk

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 101
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 499
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 337166
Samtals gestir: 70933
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 10:45:41

Vafraðu um



Tenglar

This page in english