Fréttir

24.4.2008

Helmingsbrokeback við Hraunsvatn


Stjórnarformaður hélt til ísfiskveiða á Hraunsvatn fyrir stuttu ásamt spúsu sinni. Ragna sá um nestið að sjálfsögðu á meðan Stjórnarformaður safnaði orku fyrir léttu gönguna. Gangan reyndist hins vegar ekki eins létt og búist var við, það tók tæpa tvo tíma að klofa í gegnum snjóinn upp að vatninu. Þegar þangað var komið voru heitasta parið orðið svo þreitt af göngunni að þau nentu ekki að labba lengra inn á vatnið svo það var bara byrjað við útfallið. Mikill snjór var á ísnum og snjórnarformaður þurfti að byrja á að moka snjóinn áður en það var byrjað að bora með forlátum bor sem hann ahfði að láni frá Sveini ofurhnýtara, með lengingu til öryggis. Það var ekki mikið líf en Rögnu tókst þó að húkka eitt helvítið eftir að þau höfðu borðað próteinbar sem Ragna hefði smurt úr strax fyrir ferðina, Stjórnarformaðurinn gerði hinsvegar stoltur brokeback í fyrsta en alveg öruggega ekki síðasta skiptið á árinu.
Hér eru myndir úr ferðinni 

Skrifað 24.4.2008 kl. 22:02 af Stjórnarformaður

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.4.2008

Sjóstöng á MS Hrákadalli


Siglingaleiðin


Framkvæmdastjóranum bauðst að halda til veiða með Brynjari Kristjánssyni Flutningabílstjóra og Lífskúnstner auk Sveins Flutningabílasölumanni úr B&L. Skemmst er um að nefna að lítið annað en um flutningabíla var rætt í þessari veiðiferð og ekki var veiðin merkileg þó einhverjir þorskar hafi veiðst.


Stolt siglir fleygið mitt stórsjónum á

Um var að ræða 30 kg af óunnum þorski sem var svo unninn með bitlausum flökunarhnífum af hæfileikalausum flökurum og því var útkoman þessi fíni bolluþorskur. Ljóst er að Framkvæmdastjórinn verður að eyða einhverjum kvöldum í að steikja fiskbollur og lummur á næstunni.

Skrifað 20.4.2008 kl. 15:38 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.4.2008

Fyrsta Vífilsstaðabrókbakk ársins


Framkvæmdastjórinn ásamt Ellen spúsu sinni og KO bróður sínum héldu til veiða í Vífilsstaðavatn í von um stærðar urriða eins og lýst var í þessari lygafrétt. Allt kom hinsvegar fyrir ekki og fóru veiðimenn fisknum færri heim. Augljóst er að þörf er að hafa með mann af erlendum uppruna eins og sannaðist með Tony Thorstensen Formann Noregsdeildar félagsins í fyrra.

Myndir úr túrnum

Skrifað 13.4.2008 kl. 19:54 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.4.2008

Vefvandræði



Útlitsbreytingar á vefnum eru hafnar en því miður þá hefur vefhýsill okkar 123.is ákveðið að uppfæra allt sitt dót þannig allar fúnksjónir eru ekki fullvirkar ennþá eins og að breyta útliti að eigin geðþótta. VIð bíðum bara eftir að vefurinn verði fullkláraður til að geta séð fallegri og betri síðu.

Skrifað 10.4.2008 kl. 8:56 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 350
Gestir í dag: 66
Flettingar í gær: 499
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 337415
Samtals gestir: 70969
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 20:40:03

Vafraðu um



Tenglar

This page in english