Fréttir

21.2.2008

Félagsskírteinin komin í hús


Stjórnin vill taka fram að ef einhverjir hafa kvartanir yfir millinöfnum sem stjórnin gaf á félagsskírteinum er þeim hér með bent á að skila formlegri umsókn um breytingu á löggildu skjalapappír. Hún verður svo tekin til athugunar og jafnvel leiðrétt 2009 ef fjármagn til prentunar fæst.

Skrifað 21.2.2008 kl. 21:49 af 1

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

18.2.2008

Ísfiskveiðar í/á Kringluvatni

Það má með sanni segja að sannir veiðimenn gefast ekki upp þó svo að það gangi nú ekkert sérstaklega vel í veiðinni. Það hafa þeir félagar Sigmar, og sérstaklega Matthías komist á snoðir með.

Eftir nokkrar fýluferðir í Ísfiskveiðum, var ákveðið að reyna við Kringluvatn aftur en í þetta skiptið með reynslubolta. Stebbi gamli var svo vænn að taka Matthías og Sigmar í læri og kenna þeim á hvernig skal veiða í gegnum ís. Stebbi gamli kom sér líka vel þegar Nissan birfreið Matthíasar vildi ekki lengra að vatninu, en kallinn var á þessu fína fjórhjóli og ferjaði þá félaga niður að vatni.


Stebbi og Matti góðum gír

Það er ekki hægt að segja að fyrstu holur hafi gefið neitt sérstaklega vel, en Stebbi gamli var í því að reyta upp smáum silungi á meðan Sigmar og Matthías störðu ofan í tóma holuna. Reynslan hefur greinilega eitthvað að segja í þessum bransa.

Engu að síður fór Sigmar að ná upp einhverjum silungum líka, en það var frekar rólegt framan af. Það dróg þó til tíðindi hjá Sigmari, þar sem hann setti í einn vænan urriða sem átti greinilega leið um holuna hjá honum.  Það tók ekki langan tíma að landa fisknum, en sá tími var átakanlegur fyrir Sigmar, þar sem hann taldi urriðan geta vænlega losað sig af spúninum með því að fara lengra undir ísinn. Sigmari til mikillar lukku, gerði hann það ekki.


Sigmar var að vonum grobbinn með urriðan

Matta tókst þó að forða sér frá Brokebacki og náði upp einhverjum silungsgreyjum sem enduðu í refafóður. Ferðin var engu að síður mjög skemmtileg og gaman að sjá að líf er greinilega kviknað í vötnunum. Spurning er bara hvert verður farið næst.

Bíttá mælir svo með þessu stórskemmtilega myndbandi sem er mjög lýsandi fyrir ferðina.

Aflatölur

Stebbi: 14 silungar

Sigmar: 5 silungar og 1 bolta urriði

Matti: Nokkrar lontur sem enduðu í refafóðri

Myndir

Vídeó

Skrifað 18.2.2008 kl. 23:48 af 1

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.2.2008

Formaður Suður-Jótlandsdeildar 30 ára í dag


Ingvar að kljást við óstýrlátan Þvebbara


Í tilefni dagsins hefur félagið ákveðið að senda hér Formanni Suður-Jótlandsdeildar, Ingvari Smára Guðgeirssyni heilshugar afmæliskveðju.
Til Hamingju með afmælið gamli.
Hér er myndband af honum við veiðar í Þverbrekkuvatni

Skrifað 17.2.2008 kl. 15:48 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.2.2008

Svartfugl á Sunnudegi



Stjórnarformanni bauðst að halda til svartfuglsveiða á sunnudaginn síðastliðinn ásamt Gunnari Rafni og Daða Tryggva. Veður var ekki með þeim félögum sunnan rok en hlítt.
Bátsferðin byrjaði ágætlega með vindin í bakið, Þeir voru rétt komnir á leyfileg mið þegar fyrsta kvikindið lá í valnum. Það voru háar öldur og því frekar erfitt að koma auga á helvítin svo það féllu ekki fleyri kvikindi á leiðinni út. Þegar þeir snéru við og ætluðu að halda heim á leið fengu þeir aldeilis að finna fyrir veðrinu trillan kastaðist upp og niður þegar öldurnar lentu á nefinu. Mönnum var nú ekki alveg sama þagar tilfinningin var orðin líkari því að vera á trampolíni en Tryllu. Þeir náðu þó að tína upp þrjá fugla til viðbótar á heimleiðinni og enduðu aflatölur því í fjórum fuglum sem verður að teljast gott í þessari brælu. Stjórnarformaður fékk að sjálfsögðu að eiga aflan og stendur til að matreiða hann fljótlega.
Hér eru svo myndir

Skrifað 14.2.2008 kl. 10:24 af Stjórnarformanni

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.2.2008

Bíttá Helvítið þitt óskar eftir Lödu Sport


Bifreið sem þessi myndi sóma sér vel sem aðalveiðibíll félagsins

Framkvæmdastjórin Bíttá Helvítið Þitt setur hér með út á alnetið ósk um að fá keypta gegn vægu verði eða gefna Lödu Sport. Hún má vera í misjöfnu ástandi og getur félagið greitt fyrir hana í Vodka og Sígarettum sé þess óskað. Mun þessi bifreið vera táknbifreið félagsins útávið því fáir jeppar standast Löduna í snúningum eins og sjá má af þessu myndbandi.sem og þessu
Hafir þú lesandi góður bifreið sem þessa undir höndum sem þú hefir hug á að láta til félagsstarfsemi sem veitir henni eilíft líf, vinsamlega sendið framkvæmdastjóra félagsins tölvupóst þess efnis á netfangið sveinnelmar@hotmail.com.

Einnig má sjá myndbönd til vitnis um ágæti lödunar hér og hér.
Ennfremur hér og hér

Skrifað 11.2.2008 kl. 16:15 af 1

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.2.2008

Kuldasumarið mikla?

Skoða nánar

3.2.2008

Leiðrétt Vegna fréttar um ísfiskveiðar 2/2/08

Skoða nánar

2.2.2008

Ísfiskveiðar og útafakstur

Skoða nánar

2.2.2008

Ísfiskveiðar á Meðalfellsvatni

Skoða nánar

2.2.2008

Formaður Norður-Jótlandsdeildar gefur Íslandsdeild Bíttá Helvítið Þitt gjöf

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 155
Gestir í dag: 52
Flettingar í gær: 499
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 337220
Samtals gestir: 70955
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 16:03:39

Vafraðu um



Tenglar

This page in english