Fréttir

10.1.2010

Fyrsta veiðiferð Bíttá Helvítið Þitt árið 2010


Stjórnaformaður er orðin áskrifandi að þessum í Kringluvatni

Hörðustu limir Bítta byrjuðu veiðitímabilið með stæl í dag sunnudaginn 10. jan, en þeir eru Stjórnarformaður, Sigmar bóndi og Eiríkur án gælunafns.
Stjórnarformaður vaknaði nokkrar mínútur fyrir átta og hellti uppá kaffi áður en hann lagði af stað að sækja strákana. Sigmar hvaðst en sofandi svo hann fór fyrst til Eiríks sem hafði nýlokið við að tefla morgunskák við Benedikt 16. Páfa. Eiríkur virtist illa sofinn sökum draumfara um risa skepnur sem rifu hann með sér niður um vök en það kom ekki að sök.
Eftir stutt drykkjar stopp og daður í BSO voru kappar klárir til að leggja í hann austur í Reykjarhverfi.
Ferðin gekk snuðrulaust fyrir sig og það var rétt að byrja að birta þegar þeir mættu út að afleggjara við Kringluvatn.
Þar var snjósleðanum dúndrað afturábak af kerruni og þar sat hann fastur svo fyrsta verk var að losa hann og gera ferðahæfan ásamt því lesta hann með ísbor, skóflu og bónda.
Eftir að stjórnarformaður hafði skutlað bónda og ísbor að Kringluvatni skutlaðist hann eftir Eiríki sem vantar gælunafn.
Bóndinn var að sjálfsögðu búin að bora tilraunaholu til að meta ísþykkt sem var um 30cm en tölvert vatn var einnig ofan á ísnum.
Stjórnarformaður braut ísinn með að ná í litla bleikju sem fékk að fara sömu leið aftur og ekki leið á löngu þar til bóndinn hafði vippað sinni fyrstu upp um vök á meðan Eiríki án gælunafns gekk ekki alveg nógu vel.
Ekki dró mikið til tíðinda fyrr en stjórnarformaður sér stærðarinnar flykki synda framhjá aumingjalegri rækjunni sem hékk á önglinum án þess að svo mikið sem sýna henni minnsta áhuga.
Þá dró hann fram leynivopnið sem var humar sem var aðeins farið að slá í.
Hann setti vænan bita á öngulinn sem varla fékk að komast ofan í vatnið áður en stærðarinnar urriði stökk á hann og var dregin á þurrt.
Í sömu andrá og þetta gerðist reif bóndin annan urriða úr sinni holu sem var orðin blóði drifinn eftir mokveiði líðandi dags.


Sigmar situr og dreymir um skákina góðu

Eiríkur (sem við verðum að finna gælunafn á) vippaði svo stuttu seinna upp sínum fyrsta ísfiski á ævini eins og ekkert væri og gaf þaulreyndum ísfiskveiðimönnum Bíttá ekkert eftir.
Þá var kominn tími til að koma sér heim eftir yndislegan dag við Kringluvatn og það er óhætt að segja að það sé orðin árviss viðburður að byrja veiðiárið þar.
Á heimleiðinni undirbjó bóndinn sig undir að tefla við benidikt 16 líkt og Eiríkur hafði gert fyrr um morguninn en þegar greinin er skrifuð er ekki vitað um útkomu úr þeirri viðureign.
Stjórnarformaður fór glaður heim á leið laus við aðgerðahvíða og frekar spenntur fyrir að prufa nýja Rosendal hnýfinn sem stóðst allar kröfur sem á hann voru gerðar og endaði þessi eini urriði sem hann hyrti flakaður, roðflettur og tandori kryddaður og tilbúin til neislu næsta dag.

Ljósmyndir í boði IPhone eru hér         

Skrifað 10.1.2010 kl. 21:30 af ..Stjórnarformanni

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.10.2009

Forskot tekið á Rjúpnasæluna á Grænlandi


Það er ekki amalegt útsýnið við veiðar þarna

Framkvæmdastjórinn hefur verið við vinnu í Kangerluarsuk Ungalleq á Grænlandi síðustu vikurnar og kom nú sunnudagsfrí og var ákveðið að ganga til rjúpna. Reynist þetta vera fyrsta veiðiferð Skýttá Helvítið þitt erlendis og var veðrið og félagsskapurinn ekki af verri endanum.


Þorri var í góðu dagsformi með 10 Rjúpur meðan Framkvæmdastjórinn var sáttur við sínar 6

Það var enginn annar en Þorri Stórskytta sem fylgdi okkkar manni á veiðislóðirnar og upp úr krafsinu höfðu þeir félagarnir 16 rjúpur. Þorri hafði þó vinninginn á Framkvæmdastjóran með 10 rjúpum á móti 6 rjúpum Framkvæmdastjórans.


Veiðisvæðið var ekki það þægilegasta yfirferðar

Gríðarlega erfitt er að ganga í þessu landi enda stórgrýtt með snjó upp í mitti en þeir félagar víluðu það ekki fyrir sér með fyrrnefndum árangri.

Myndir 

Skrifað 25.10.2009 kl. 20:03 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.8.2009

Hin Árlega ferð Framkvæmdastjórans í Hofsá og Vesturdalsá í Vopnafirði


Það eru fallegir fiskar í Vesturdalsá.

Á dögunum dvaldi Framkvæmdastjórinn ásamt spúsu sinni Ellen á Vopnafirði í góðu yfirlæti hjá Bankastjóranum á Vopnafirði og eiginmanni hennar. Að vanda bauð Bankastjórinn Framkvæmdastjóranum í veiði bæði í Hofsá og Vesturdalsá. Gerðu þau með sér samning um að Framkvæmdastjórinn myndi sjá um veiðina og aflinn myndi falla í hendur Bankastjórans.


Þessi bleikja bjargaði Framvæmdastjóranum undan Brókbakki með naumindum

Dagur 1 - Hofsá Efra Silungasvæði
Aðeins betur gekk þar en í fyrra  og ekki leið á löngu þar til Framkvæmdastjórinn hafði sett í væna bleikju í Jónshyl en missti hana eftir stutta baráttu. Þar eftir gerðist ekkert neinsstaðar fyrr en um klukkan 22 þá lyngdi hvassan norðanvindin í um það bil 20 mínútur og þá tók helvvítis bleikjan Svartan Toby efst í Fellshyl. Þarna tókst Framkvæmdastjóranum með naumindum að bjarga sér undan fyrsta Brókbakki síðan í júní.


Ekki slæmt að fá 5 Punda Urriða í rómuðu bleikjuánni Hofsá

Dagur 2 - Hofsá Neðra Silungasvæði
Eftir næturrigningarnar hafði hofsáin breytt sér í kakó við brúnna en þar var engu að síður fengið sér að veiða en án árangurs. Var þá haldið í Jónshylinn efst á neðra svæðinu og varð Framkvæmdastjórinn fljótlega var við fisk í vakstri þar neðst. Eftir að hafa kastað flestum litum af kúluhausum á hann ákvað Framkvæmdastjórinn að reyna Bleikjubanan, gamla hönnun veiðimannsins. Og auðvitað var hann á, einhver smá sjóbirtings ræfill. Ofar í hylnum beit svo helvítið loksins á, 5 punda urriði.  


Vesturdalsá stendur alltaf fyrir sínu - Snilldarspræna

Dagur 3 - Vesturdalsá
Fremri Hlíðar brúin gaf vel að vanda eða 5 bleikjur. Einhver slatti fékkst í Teljarastrengnum og svo Lax og stór Bleikja í Hringhyl.


Ellen reyndi fyrir sér meðan Framkvæmdastjórinn sporðrenndi samlokunni

En ekki má gleyma því að þessi elska sem Ellen spúsa Framkvæmdastjórans er fór í einu og öllu eftir tilmælum í lögum félagsins og færði Framkvæmdastjóranum hangikjötssamlokur, jógúrtkökur og kaffi á meðan hann var að erfiða við að draga heim björg í bú.
Framkvæmdastjórinn þakkar að sjálfsögðu einnig Bankastjóranum á Vopnafirði fyrir skemmtunina fæðið og húsnæðið

Myndir Hofsá

Myndir Vesturdalsá

Skrifað 25.8.2009 kl. 17:22 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.8.2009

Fyrsta hreindyrið í sögu Skýttá Helvítið þitt



Framkvæmdastjórinn - Fljótsdalsheiði - Grjótalda
Framúrskarandi leiðsögn Jóns Hávarðar
Nógur matur í allan vetur.

Myndir

Skrifað 17.8.2009 kl. 20:21 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.7.2009

Vífilsstaða og Urriðakotsdrama - Tony kvaddur heim


Tony sýnir Sveini og Birni hvernig skuli veiða bleikuna

Sú sorgarstund hefur nú risið á landi okkar að besti innflytjandi landsins Tony Thorstensen hefur ákveðið að sigla af landi brott heim til Noregs. Kveðjustundin átti sér stað á þeim veiðistað sem Tony hefur verið mest hjartfólginn hér á landi, Vífilsstaðavatn. Fáir menn hafa veitt eins mikið í Vífilsstaðavatni og hann og var það hann sem uppgvötaði Bleikjuhúkkshyl sem hefur verið limum Bíttá Helvítið Þitt hjartfólginn veiðistaður síðan 2007 þegar Tony ásamt Bíttá-bræðrum, Sveini og Kristjáni gereyddu hrygningarstofni Vífilsstaðavatns það árið. En stofnin hefur náð sér á strik. Tony veiddi rúmlega 20 bleikjur á einu kvöldi á dögunum á þessum margrómaða veiðistað og stóð til að hann myndi kenna Sveini Framkvæmdastjóra og Birni Formanni Norður-Jótlandsddeildar veiðar í bleikjuhúkkshyl svo kunnáttan hyrfi ekki úr landi með Tony.


Björn leggur á ráðin hvernig skuli veiða vatnið

Eftir þó nokkuð námskeið hjá Tony kom að kveðjustundinni. Framkvæmdastjórinn og Formaður Norður-Jótlandsdeildar grétu og föðmuðu og kysstu Tony Formann Noregsdeildar sem loks kvaddi og gekk niðurlútur á brott.
Sveinn og Björn reyndu að veiða áfram en áttu erfitt með það fyrir kökknum í hálsinum auk þess hafði Tony greinilega eytt hrygningastofni þessa árs í fyrri ferð sinni. Því ákváðu þeir félagar að halda í Urriðakotsvatn og reyna fyrir sér þar.



Oft var veiðin góð hjá Tony í Vífilsstaðavatni

Þegar að vatninu var komið fannst mönnum það ekki mjög veiðilegt. Allt fullt af sefi og pínulítið. En bíddu við þar stökk um 2 punda fiskur hálfan meter upp úr vatninu. Ákveðið var þar og nú að reyna með sér þarna. Sveinn fékk fljótlega nart á Bobby Brown líki sitt en svo ekkert meir. Sagði Sveinn þá hátt og snjallt við Björn að nú væri sett undir besta urriðafluga í heimi, Rektorinn. Viti menn í öðru kasti tók hann stökkvandi og dýrvitlaus. Eftir talsverða baráttu náðist kvikindið á land með dyggri hjálp Björns. Reyndist hann vera 1,5 Pund kolsvartur og feitur matfiskur. Eftir þetta fékkst ekkert nema eitt seiði.


Auðvitað var hann drepinn Urriðakotsurriðinn.

Því var ákveðið að reyna Bleikjuhúkkshyl Vífilsstaðavatnsins aftur.
Björn sem er þekktur fyrir að spúna geddur á Norður-Jótlandi reyndi með sér gedduspúnaðferðina án árangurs og því afhendi Framkvæmdastjórinn honum flugustöngina og bauð honum að reyna með sér. Verður að segjast að eins og Björn er fær við gedduspúninn þá vantar talsverða æfingu á flugustöngina.


Bleikjan sem veiddist er farið var nákvæmlega eftir leiðbeinigum Tonys

Því bauð Sveinn honum að hann skyldi sýna sér hvernig skyldi bera sig að og rifjaði upp öll heilræðin sem Tony hafð gefið honum fyrr um kvöldið. Hann kastaði á réttan stað, lét fluguna sökkva og beið og kippt svo í. Viti menn hann hafði húkkað eina bleikjuna í magan og landaði henni með hjálp Björns.


Björn með metbleikjuna úr Hraunsvatni 10 pund og 85 cm

Því miður veiddi Björn ekkert en við sem þekkjum til hans veiða, vitum að hans veiðiaðferð veiðir bara stórfiska svo sem metbleikjuna í Hraunsvatni og því tók hann þessu veiðileysi af æðruleysi og minntist á það að sennilega væru ekki nógu stórir fiskar fyrir hann í þessum vötnum.

Tony Thorstensen þín verður sárt saknað á Íslandi

Myndir

Skrifað 28.7.2009 kl. 12:57 af Framkvæmdastjóranum

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.7.2009

Eystri Rangá - BTB (Back to Basics)

Skoða nánar

11.7.2009

Ytri Rangá

Skoða nánar

9.7.2009

Fyrir þá sem eru ekki sportveiðimenn og borða fisk

Skoða nánar

5.7.2009

Laxveiði hvað? Bleikja er málið

Skoða nánar

3.7.2009

BTB (Back To Basics) - Sjóstöng

Skoða nánar

1.7.2009

Leynileg færsla

Skoða nánar

26.6.2009

Tvö ný myndbönd af Eiríki landa mðal annars 8 punda bleikju

Skoða nánar

25.6.2009

Hraunsvatn tekið með trompi annan daginn í röð

Skoða nánar

23.6.2009

Hraunsvatn 2009

Skoða nánar

23.6.2009

Arnavatnsheiði! "Surviving the last frontier"

Skoða nánar

10.6.2009

Stjórnarfundur í Úlfljótsvatni - "Það borgar sig að spúna!"

Skoða nánar

31.5.2009

H-in tvö Part II - Hafravatn og Hafliði

Skoða nánar

28.5.2009

Eyjafjörður eyðilagður?

Skoða nánar

26.5.2009

Ótitlað

Skoða nánar

25.5.2009

Alvöru veiðitúr á norðurlandi!

Skoða nánar

22.5.2009

Hafravatn og Hraunsfjörður - H-in tvö

Skoða nánar

19.5.2009

Veiði greinilega ættgeng

Skoða nánar

16.5.2009

Kleifarvatn klárað

Skoða nánar

25.4.2009

Brúará of stór fyrir Bíttá - Neikvætt fiskvatnshlutfall olli Brókbakki.

Skoða nánar

17.4.2009

Ýmislegt páska eitthvað

Skoða nánar

17.4.2009

Ransóknardorg E250 í Hraunsvatni

Skoða nánar

27.3.2009

Fyrsta Brókbakk 2009

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 386
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 334910
Samtals gestir: 70459
Tölur uppfærðar: 14.3.2010 00:17:40

Vafraðu um



Tenglar

This page in english